Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 08.09.2022

Tjaldsvæði VR lokar

Nú eru síðustu forvöð að njóta þess að gista á glæsilegu tjaldsvæði VR í Miðhúsaskógi þetta árið því svæðinu verður lokað frá og með fimmtudeginum 15. september nk.
Við opnum aftur þegar vorar á ný en minnum á að félagsfólk VR hefur aðgang að orlofshúsum víðs vegar um landið allt árið um kring, sjá nánar á orlofsvef VR.

Við þökkum félagsfólki fyrir frábæra umgengni um svæðið í sumar.