Sumaruthlutun Kubbur Copy2

Almennar fréttir - 08.01.2024

Úthlutun orlofshúsa 2024

Úthlutun orlofshúsa hjá VR verður með breyttu sniði sumarið 2024 og umsóknartímabilið lengt umtalsvert. Nýja úthlutunin fer þannig fram að VR félagi fer á Mínar síður og sækir þar um þrjá valkosti sem hann raðar í fyrsta, annað og þriðja sæti eftir því hvað hann myndi helst vilja. Dregið er af handahófi úr innsendum umsóknum. Félagsfólk fær sendan tölvupóst að úthlutun lokinni og hefur tiltekinn tíma til að staðfesta pöntunina. Þannig verður sumarúthlutun ekki lengur bundin við einn dag í janúar eins og tíðkast hefur undanfarin ár.

Opnað verður fyrir umsóknir þann 15. janúar 2024 og lokað fyrir umsóknir þann 29. febrúar. Ekki skiptir máli hvenær á tímabilinu félagsfólk sækir um, það á allt jafn mikla möguleika á að vera dregið út. Félagsfólk sem fær úthlutað orlofshúsi hefur tvær vikur til að ganga frá greiðslu í gegnum Mínar síður. Sama regla verður viðhöfð og áður að félagsfólk sem hefur fengið úthlutað orlofshúsi einhvern tímann síðustu þrjú sumur getur ekki sótt um á tímabilinu. Séu orlofshús laus eftir að úthlutun lýkur gildir reglan fyrst koma fyrst fá.

Þann 5. febrúar 2024 kl. 12:00 verður opnað fyrir vetrarúthlutun orlofshúsa en þar gildir fyrst koma fyrst fá og sækir félagsfólk um á Mínum síðum.

Hér má sjá nánar um reglurnar og skilmála leigu orlofshúsa.