Vr Utsynismyndir 3

Almennar fréttir - 10.01.2024

Pólitískur vilji til að auka samkeppni í Sundahöfn

Fulltrúar Félags atvinnurekenda, Neytendasamtakanna og VR áttu fund á dögunum með borgar- og hafnaryfirvöldum í Reykjavík til að ræða samkeppni í flutningum og samkeppnisumhverfið í Sundahöfn, í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SE) vegna samráðs stóru skipafélaganna tveggja. Að mati samtakanna þrennra kom fram á fundinum skýr pólitískur vilji borgaryfirvalda til að fylgja eftir tilmælum SE um að tryggt verði að nýir og minni aðilar geti fengið aðstöðu og viðeigandi þjónustu, sem geri þeim kleift að keppa, án mismununar, við stærri aðila í sjóflutningum. Vinna er hafin á vegum Faxaflóahafna við að breyta rekstrarlíkani Sundahafnar, þannig að fleiri skipafélög hafi aðgang að hafnaraðstöðu og þjónustu.

Ástæða þess að FA, Neytendasamtökin og VR taka höndum saman í þessu máli, er að samtökin telja það stórt sameiginlegt hagsmunamál fyrirtækja, neytenda og launþega að fákeppnisaðstaða Eimskips og Samskipa í Sundahöfn verði brotin upp og þannig búið um hnútana að önnur skipafélög fái sanngjarnan aðgang að þjónustu og aðstöðu í þessari stærstu vöruflutningahöfn landsins. Á fundinum með borgar- og hafnaryfirvöldum var m.a. bent á að flutningskostnaður er stór áhrifaþáttur í almennu vöruverði og skiptir miklu máli nú á tímum verðbólgu.

Fundinn sátu m.a. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri. Fram kom að vinna væri hafin á vegum hafnanna við að efla samkeppni og bæta aðgang keppinauta Samskipa og Eimskips að aöstöðu og þjónustu. Það væri hins vegar hvorki einfalt verkefni né fljótunnið.

Samtökin þrenn telja fundinn hafa verið jákvæðan og munu áfram vinna sameiginlega að því að þrýsta á stjórnvöld að bregðast við tllmælum Samkeppniseftirlitsins og tryggja virka samkeppni í vöruflutningum. Á vegum FA, NS og VR er nú unnið að mati á því tjóni, sem samráð stóru skipafélaganna olli fyrirtækjum og neytendum.