3H5A9468

Almennar fréttir - 29.01.2024

Vinsamleg ábending til félagsfólks vegna erfiðrar færðar

VR beinir þeim tilmælum til félagsfólks að fara ekki af stað í orlofshús á vegum félagsins á illa útbúnum ökutækjum. Mjög snjóþungt er á öllu landinu og vetrarfærð í orlofsbyggðum VR. Félagið hvetur félagsfólk til að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.