Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Fyrirtaeki Arsins 2022 Hopmynd 1

Almennar fréttir - 19.05.2022

Fyrirtæki ársins 2022 kynnt í Hörpunni

VR kynnti Fyrirtæki ársins 2022 í fjölmennri móttöku í dag, fimmtudaginn 19. maí. Alls fá sextán fyrirtæki þessa nafnbót í ár en hátt í fimmtíu fyrirtæki fá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2022. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra afhentu viðurkenningarnar.

Fyrirtæki ársins eru sem hér segir:

Í flokki smærri fyrirtækja þar sem starfa færri en 30:

  • Farmers Market
  • Íslensk getspá
  • M7
  • Rekstrarfélag Kringlunnar
  • Reon

Í flokki meðalstórra fyrirtækja þar sem starfsfólk er 30 – 69 talsins eru fyrirtækin sex en ekki fimm eins og allajafna þar sem tvö fyrirtæki voru jöfn í fimmta sæti:

  • Expectus
  • Hringdu
  • Íslandsstofa
  • Reykjafell
  • Tengi
  • Toyota á Íslandi

Í flokki stærri fyrirtækja þar sem starfa 70 eða fleiri:

  • LS Retail
  • Miðlun
  • Nova
  • Opin Kerfi
  • Sjóvá

Könnun var lögð fyrir bæði félagsfólk í VR og fjölda annars starfsfólks fyrirtækja sem tryggðu öllu sínu starfsfólki þátttökurétt, óháð stéttarfélagsaðild. Rúmlega ellefu þúsund tóku þátt í könnuninni. Eingöngu fyrirtæki sem tryggðu öllu starfsfólki þátttökurétt komu til greina í valinu á Fyrirtæki ársins eða Fyrirmyndarfyrirtæki en það eru þau fyrirtæki sem eru í fimmtán efstu sætunum í stærðarflokkunum þremur.

Sjá niðurstöður og lista yfir fyrirtækin hér.