Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_jolaball_10122016-3.jpg

Almennar fréttir - 01.12.2017

Jólaball VR - Miðasala er hafin

Jólaball VR verður haldið sunnudaginn 10. desember í Flóa í Hörpu frá kl. 15.00 - 17.00. Flói er á fyrstu hæð hússins. Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson leika jólalög og dansað verður í kringum jólatréð.

Miðasala fer fram á orlofsvef VR á Mínum síðum. Miðinn á ballið kostar 500 kr, en frítt er inn fyrir börn 12 ára og yngri. Allir fá glaðning frá jólasveininum. Bílastæðahús er við Hörpu og þaðan er aðgengilegt beint inn í húsið. Gjaldskylda er í bílastæðin.