Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
johannagudrun.jpg

Almennar fréttir - 04.12.2017

Má bjóða þér á jólatónleika?

Jólatónleikar VR verða haldnir í hádeginu 14. desember kl. 12.00-13.00. Söngkonan Jóhanna Guðrún mun sjá um tónleikana að þessu sinni. Afslöppuð jólastemning verður og mun hún flytja nokkur vel valin jólalög sem ættu að koma öllum í jólaskap. Með Jóhönnu verður gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson. Jólatónleikarnir verða í sal VR í Húsi verslunarinnar á jarðhæð. Boðið verður upp á léttan hádegismat.

Takmörkuð sæti eru í boði – fyrstur kemur fyrstur fær.

UPPFÆRT: Uppbókað er á tónleikana.