Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Utsynismyndir 6

Almennar fréttir - 16.12.2021

Launarannsókn komin út

Heildarlaun félaga í VR voru alls 675 þúsund krónur í september síðastliðnum þegar litið er til miðgildis en miðgildi grunnlauna var 671 þúsund. VR birtir niðurstöður launarannsóknar tvisvar á ári, miðað við laun í febrúar og september. Launarannsóknin byggir á greiddum félagsgjöldum og skráningum félagsfólks á upplýsingum um starfsheiti og vinnutíma á Mínum síðum. Launarannsókn september 2021 byggir á launum rúmlega 12 þúsund félaga í VR sem skráð hafa upplýsingarnar á Mínum síðum.

Launarannsókn sýnir bæði grunnlaun og heildarlaun. Birt eru meðallaun, miðgildi launa og efri og neðri mörk. Einnig er birtur fjöldi svarenda bak við niðurstöðurnar. Hægt er að skoða laun eftir starfsstétt eingöngu eða eftir starfsstétt innan atvinnugreina.

Nánar um launarannsókn og laun eftir starfsheitum og atvinnugreinum hér.