Vr Fanar Kringlan 2

Almennar fréttir - 11.01.2024

Viltu leggja þitt af mörkum í starfi VR?

Uppstillingarnefnd VR óskar eftir frambjóðendum til trúnaðarráðs VR. Áhugasöm geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillingarnefnd@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 22. janúar næstkomandi.

Í samræmi við lög VR óskar uppstillingarnefnd eftir frambjóðendum til að skipa lista stjórnar og trúnaðarráðs vegna listakosningar um trúnaðarráð í félaginu.
Uppstillingarnefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsfólks. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa fyrir félagið.

Vinsamlega athugið að ekki er heimilt að vera samtímis í framboði í listakosningu til trúnaðarráðs og einstaklingskosningu til stjórnar.

Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins, svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmdir.

Uppstillingarnefnd VR