Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
veidikortir_emil.jpg

Almennar fréttir - 16.03.2021

Veiðikortið er komið í sölu

Fullgildum félagsmönnum VR stendur til boða að kaupa Veiðikortið fyrir sumarið 2021.
Veiðikortið veitir nær ótakmarkaðan aðgang að fjölda vatnasvæða vítt og breitt um landið. Handbók fylgir hverju korti þar sem má finna leiðbeiningar og reglur. Kortið kostar 5600 kr. og getur hver fullgildur félagsmaður keypt eitt kort.

Hægt er að kaupa veiðikortið og útilegukortið á Mínum síðum eða á skrifstofum félagsins.