Almennar fréttir - 28.08.2026
Verðbólgan í ágúst 2026
Í gær, 27. ágúst, þegar mæling vísitölu neysluverðs var birt, varð endanlega ljóst að forsendur kjarasamninga eru fallnar. Verðbólga í ágúst stendur í 5,6% en forsendur kjarasamninga kváðu á um að hún yrði 4,7% eða lægri.
Við gerð kjarasamninganna í febrúar 2024 mældist verðbólga 6,6% og stýrivextir stóðu í 9,25%. Nú stendur verðbólgan eins og fyrr segir í 5,6% og stýrivextir í 8% — staðan er langt frá því sem samningsaðilar gerðu ráð fyrir þegar samið var um stöðugleika og lægra vaxtarstig.
Til þess að skilja betur hvernig hvernig þessi háa verðbólga er til komin er rétt að skoða undirliði hennar.
__________________________
Ársverðbólga mælist 5,6%. Fjórðungur hennar liggur í reiknaðri húsaleigu einni og sér, og annar fjórðungur á rætur að rekja til ákvarðana hins opinbera.
Kostnaður við húsnæði stærsti þátturinn
Reiknuð húsaleiga, sem mælir kostnað við að búa í eigin húsnæði, hækkaði um 7,2% á einu ári. Sá liður einn og sér skýrir 1,5 prósentustig af 5,6% verðbólgu, eða um fjórðung. Greidd húsaleiga hækkaði um 7,1% til viðbótar. Samtals stendur húsnæði undir tæpum þriðjungi verðbólgunnar.
Opinberar hækkanir skýra rúman fjórðung
Rúmur fjórðungur verðbólgunnar, um 1,5 prósentustig, á rætur að rekja til ákvarðana ríkis og sveitarfélaga um skatta, gjöld og gjaldskrár.
Stærsti einstaki þátturinn er uppstokkun á skattlagningu ökutækja um síðustu áramót. Vörugjöld á eldsneyti féllu niður og kílómetragjald var tekið upp á öll ökutæki. Bensín lækkaði um 27,5% á móti. Samhliða var vörugjaldakerfi bifreiða endurskoðað og ívilnanir rafbíla skertar og var um hreina hækkun að ræða. Verð á bifreiðum hækkaði um 10,6% og leggur eitt og sér 0,6 prósentustig til verðbólgunnar.
Ofan á þetta koma gjaldskrárhækkanir sem lenda beint á heimilunum:
- Skrásetningargjald opinberra háskóla hækkaði úr 75.000 í 100.000 krónur.
- Komugjald á heilsugæslu tvöfaldaðist 1. ágúst, úr 500 í 1.000 krónur.
- Hitaveita hækkaði um 10,3%.
- Vatnsveita, fráveita og sorphirða hækkuðu um 4,3%.
Innlend frekar en innflutt
Verðbólgan er heimatilbúin: 58% hennar er innlend, 27% kemur frá hinu opinbera og aðeins 15% er innflutt. Innflutta framlagið ræðst að mestu leiti af einum lið því alþjóðleg flugfargjöld hækkuðu um 27% og skýra tvo þriðju hluta þess.
Innlend matvara og drykkir hækkuðu um 4,4%, fatnaður um 0,7% og heimilistæki lækkuðu um 3,8%. Það sem sker sig úr er húsnæðið og gjaldskrárnar, og hvorugt ræðst við samningaborðið.
Hvað gerist næst?
VR spáir því að verðbólgan verði áfram há út árið og verði ríflega 5,5% í desember. Ljóst er að verðbólgan, sem tók að hækka að nýju um síðustu áramót, er á breiðum grunni og mun það taka samhent átak að vinna bug á henni – þar þurfa stórir verðmótandi aðilar að leggja sitt af mörkum, auk stjórnvalda.



