Almennar fréttir - 31.08.2026
Kjörstjórn VR auglýsir eftir framboðslistum
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu í VR við kjör fulltrúa félagsins á 47. þing Alþýðusambands Íslands 2026.
Kjörnir verða 85 fulltrúar og 30 til vara. Framboðslistar ásamt meðmælum 1% fullgildra VR félaga þurfa að hafa borist kjörstjórn á netfangið kjorstjorn@vr.is eða á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, fyrir kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 7. september næstkomandi.
Kjörstjórn VR