Almennar fréttir - 08.10.2026
Samkomulag VR og SA um kjarasamninga í höfn
VR og Samtök atvinnulífsins hafa komist að samkomulagi um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið, sem var handsalað laust fyrir klukkan 16:00 í dag, felur í sér nýtt forsenduákvæði sem kveður á um heimild til að stytta gildistíma kjarasamninga, miðað við ákveðið verðbólguviðmið. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fagnar niðurstöðunni og segir ánægjulegt að komist hafi verið hjá uppsögn kjarasamninga með tilheyrandi upplausn á vinnumarkaði.
Forsenduákvæðið heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði ef 12 mánaða verðbólga í október 2027 mælist yfir 4,3% eða að verðbólga á 6 mánaða tímabili frá apríl til október 2027 verður yfir 3,8% miðað við árshraða. Þegar verðbólgumæling í október liggur fyrir munu aðilar skoða undirliggjandi þætti verðbólgunnar og taka m.a. tillit til þess hvort innflutt verðbólga sé meginástæða þess að forsendur aðilar stóðust ekki. Ef aðilar eru sammála um að sú sé raunin, muni ekki koma til uppsagnar kjarasamninga eða þeir styttir minna en um tvo mánuði. Ef ekki næst samkomulag falla samningar úr gildi þann 30. nóvember 2027. Sjá hér samkomulagið í heild sinni.
Halla segir aðkomu forsætisráðherra hafa liðkað verulega fyrir samningum, en stjórnvöld leggja m.a. til einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, 2 milljarða króna mælist verðbólga yfir 4,0% eða 3 milljarða króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5% á þeim tímapunkti.
Sjá hér yfirlýsingu ríkisstjórnar, sveitarfélaga, ASÍ og SA sem og aðgerðarpakka stjórnvalda.
Halla sagðist binda vonir við að samkomulagið og aðgerðarpakki stjórnvalda stuðli að því að markmið kjarasamninganna um minni verðbólgu og lækkun vaxta nái fram að ganga.
Fréttin hefur verið uppfærð.