Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Undirritun 23.5.22

Almennar fréttir - 23.05.2022

Enn meiri uppbygging á vegum stéttarfélaganna

Forseti ASÍ, formaður BSRB, formaður VR og framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags undirrituðu í dag rammasamning um að nýta reynslu og þekkingu Bjargs til að taka næsta skref í uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar á íbúðum á viðráðanlegu verði.

VR kemur til með að byggja íbúðir fyrir sitt félagsfólk með langtímahugsun og lághagnað að leiðarljósi undir hatti systurfélags Bjargs íbúðafélags; Blævar.
Þetta tilraunaverkefni er vonandi upphafið að frekari uppbyggingu á vegum verkalýðshreyfingarinnar. Hingað til hefur verið byggt á vegum Bjargs undir lögum um almennar íbúðir, með stofnframlagi frá ríki og sveitarfélögum og fólk innan ákveðinna tekjumarka hefur fengið úthlutað.

Með stofnun og uppbyggingu Blævar, sem er systurfélag Bjargs, geta einstaka félög innan vébanda ASÍ og BSRB byggt íbúðir og úthlutað án skilyrða við tekjumörk. Hagkvæmnin næst með því að gera lágmarkskröfur um arðsemi og nýta reynslu og þekkingu á hagkvæmum byggingum sem myndast hefur hjá Bjargi.

Samningurinn sem undirritaður var í dag er þjónustusamningur þar sem Bjarg mun selja út þjónustu til Blævar án þess að það hafi önnur áhrif á starfsemi Bjargs. Þannig getur Blær notið þeirrar reynslu og þekkingar sem Bjarg hefur aflað sér síðustu árin með farsælli uppbygging íbúða á viðráðanlegum kjörum.