Almennar fréttir - 10.09.2026
Ályktun stjórnar VR: Ríkistjórnin nær núlli á kostnað launafólks
Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem, að óbreyttu, dregur úr líkum á að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti haldið gildi sínu. Stjórnin krefst þess að ríkisstjórnin og Alþingi endurskoði frumvarpið með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, dragi úr fyrirhuguðum álögum á heimilin, frysti opinberar gjaldskrár og leggi fram raunverulegar aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Við undirritun síðustu kjarasamninga skuldbundu ríki og sveitarfélög sig til að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf og gera gangskör í húsnæðismálum. Við það hefur ekki verið staðið og það, ásamt verðhækkunum fyrirtækja, hefur leitt til þess að forsendur kjarasamninga eru brostnar. Mánuðum saman hefur VR, stærsta stéttarfélags landsins, kallað eftir því að stjórnvöld snúi af braut og virði skuldbindingar sínar gagnvart kjarasamningum, ekki síst með því að frysta gjaldskrár og hækka þær ekki umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Í fjárlagafrumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir að hækka gjaldskrár í takti við verðbólgu, sem getur viðhaldið spíral verðbólgu og hárra stýrivaxta.
Stjórn VR krefst þess að verðþak á olíu verði leitt í lög að nýju og vari svo lengi sem olíukrísan varir. Verðþakið hefur varið heimilin fyrir áhrifum mikilla hækkana á olíuverði vegna árásarstríðsins gegn Íran og það sætir furðu að sú framsækna aðgerð sé látin renna út í sandinn án umræðu. Að óbreyttu mun afnám verðþaksins valda hækkun á verðbólgu sem, líkt og gjaldskrárhækkanir, skilar sér inn í aukinn verðbólguþrýsting og þar með inn í húsnæðiskostnað fólks. Þennan vítahring þarf að rjúfa.
Stjórn VR telur fulla þörf á að ríkisstjórnin grípi til afgerandi aðgerða í húsnæðismálum. Stjórnin styður boðaða leigubremsu og bætt réttindi leigjenda, en telur að stjórnvöld verði að grípa til raunhæfra aðgerða sem stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði til framtíðar. Eins og staðan er núna er ekkert sem eykur bjartsýni á að svo megi verða. Til stendur að draga úr stofnframlögum til almenna íbúðakerfisins og lækka endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna íbúðarhúsnæðis. Húsnæðis- og barnabótum verður áfram leyft að rýrna þótt þær séu meðal markvissustu leiða til að styðja við heimili í viðkvæmri stöðu. Þá munu breytingar á útreikningi persónuafsláttar auka á skattbyrði launafólks.
Samandregið er fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar köld kveðja til launafólks sem þarf nú að takast á við forsendubrest kjarasamninga, vantraust gagnvart stjórnvöldum og fyrirtækjum, og afleiðingar af fjögurra ára hávaxtastefnu.
Stjórn VR
9. september 2026