Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Mynd Af Stolum2

Almennar fréttir - 03.03.2023

Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR kynna sig

Frambjóðendur til formanns og stjórnar VR kjörtímabilið 2023 – 2025 kynna sig og áherslur sínar á félagsfundi VR sem verður haldinn á Grand hótel Reykjavík, 7. mars 2023 kl. 19:30.

Fundinum verður streymt (Teams) á Mínum síðum á vr.is. Félagsfólk skráir sig inn á Mínar síður með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Túlkun á ensku verður einungis í boði í streymi.

Tvö eru í framboði til formanns. Elva Hrönn Hjartardóttir og Ragnar Þór Ingólfsson. Þá eru 16 í framboði til stjórnar en alls verður kosið til sjö sæta í stjórn og þriggja í varastjórn. Ítarlegi upplýsingar um alla frambjóðendur og áherslur þeirra má finna á vef VR, vr.is.

Við hvetjum félagsfólk til að mæta á fundinn eða fylgjast með í streymi.

Sjá viðburð í viðburðadagatali VR hér og á Facebook hér