Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Reiknivel_2.jpg

Almennar fréttir - 01.03.2023

Vantar þig aðstoð við skattframtalið?

Félagsfólki VR stendur til boða einstaklingsaðstoð sérfræðings KPMG við skattframtalið. Aðstoðin verður í boði 7. og 8. mars frá kl. 8:30 og til 16:00. Hver tími er 15 mínútur. Skráningu lýkur kl. 15:00 þann 6. mars.

Leiðbeinandi: Guðrún Björg Bragadóttir, sérfræðingur hjá KPMG

  • 7. mars – aðstoð hjá VR, 0. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7
  • 8. mars – aðstoð í gegnum Teams eða síma

Nánari upplýsingar verða sendar á skráð félagsfólk daginn fyrir aðstoðina. Veldu hvort þú vilt mæta á staðinn eða taka þátt rafrænt með því að velja viðeigandi hnapp í viðburðadagatalinu á vef VR. Þú færð áminningu um námskeiðið þegar nær dregur þínum tíma á tölvupóstfangið sem þú ert með skráð hjá VR. Þú getur séð hvaða netfang þú ert með skráð á Mínum síðum á www.vr.is.

Smelltu hér til að sjá lausa tíma.
Athugið að það getur tekið nokkra stund fyrir tímana að birtast.