Samkomulag um viðbrögð við forsendubresti undirritað
Þann 8. október 2026 var undirritað samkomulag milli VR og Samtaka atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér nýtt forsenduákvæði sem heimilar styttingu gildistíma kjarasamninga, verði þróun verðbólgu umfram ákveðið viðmið. Stjórnvöld stigu inn í kjaraviðræðurnar með afgerandi hætti sem liðkaði verulega fyrir því að samkomulag náðist en tillaga um einskiptisvaxtabætur kemur til móts við skuldsett heimili.
Niðurstaðan felur í sér varnir fyrir launafólk gagnvart þrálátri verðbólgu og er hvatning fyrir atvinnurekendur, sveitarfélög og ríki að standa við þau loforð sem gefin voru í tengslum við kjaraviðræðurnar. VR, LÍV og Fagfélögin börðust hart fyrir því að sveitarfélög og fyrirtæki tækju þátt í því með launafólki að koma böndum á verðbólguna með því að stilla verðhækkunum í hóf. Með þessu samkomulagi og aðgerðarpakka stjórnvalda vonumst við til að ná megi markmiðum samninganna um lægri verðbólgu og vexti.
Nýtt forsenduákvæði samninga
Nýtt forsenduákvæði kjarasamninganna segir að ef ársverðbólga í október 2027 verði yfir 4,3% eða 6 mánaða verðbólga verði yfir 3,8%, megi stytta samningstíma kjarasamninga um allt að tvo mánuði. Ákvæðið veitir launafólki ákveðna vernd fyrir áframhaldandi hárri verðbólgu, samningar verða þá lausir fyrr sem gefur stéttarfélögunum færi á að setjast fyrr að samningaborðinu fyrir næstu samninga.
Aðgerðarpakki stjórnvalda
Stjórnvöld boða að auki frekari aðgerðir í þágu launafólks og heimila en það sem mestu skipti fyrir því að samkomulag náðist er tillaga um einskiptisvaxtabætur sem munu létta á skuldsettum heimilum, haldi verðbólga áfram að vera há. Þessar vaxtabætur eru stigvaxandi, þær eru tengdar verðbólguviðmiði og eru þannig hærri eftir því sem verðbólga er hærri. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur í upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, 2 milljarða króna mælist verðbólga yfir 4,0% eða 3 milljarðar króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5%.
Höldum hækkunum við 2,5%
Aðgerðarpakki stjórnvalda felur í sér aðgerðir sem miðar að því að styrkja stöðu launafólks, létta byrðum af atvinnulífinu og stuðla að stöðugleika. Ríkið mun ekki hækka gjaldskrár sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs um meira en 2,5% á árinu 2027, að undanskildu kílómetragjaldi. Sama á við um gjaldskrár ríkisstofnana. Þá hefur Samband íslenskra sveitarfélaga hvatt til þess að sveitarfélögin haldi hækkunum almennra gjalda við 2,5% að hámarki. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til hins sama.
Þá hafa Samtök atvinnulífsins lýst því yfir að þau muni hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum.
Sjö mánaða barátta skilar árangri
Aðdragandinn að samkomulaginu við atvinnurekendur
Strax á vormánuðum 2026 var ljóst að það stefndi í að forsenduákvæði kjarasamninga á almennum vinnumarkaði brystu. Þrálát verðbólga og háir stýrivextir voru að sliga fjölskyldur og laun héldu engan veginn í við þróun á verðlagi. Í mars ákvað VR að taka höndum saman með Landssambandi ísl. verzlunarmanna og Fagfélögunum til að vinna að leiðum til að kjarasamningar gætu haldið út gildistímann, eða fram í lok febrúar árið 2028. Þessi félög eru í forsvari fyrir 45% launafólks á almennum vinnumarkaði.
Allir leggi sitt af mörkum
Launafólk hefur á gildistíma samninganna borið hærri húsnæðiskostnað, afborganir og framfærslukostnað á sama tíma og kjarasamningsbundnar launahækkanir hafa verið lægri en verðbólga. Kröfur félaganna voru þær að allir legðu sitt af mörkum svo launafólk bæri ekki eitt þessar byrðar. Stórir hópar innan VR hafa tekið á sig raunlaunalækkanir og var áhersla lögð á að stöðva það. VR og samstarfsfélög lögðu fram margar tillögur að lausnum. Þau hafa efnt til opinberrar umræðu á síðustu mánuðum um orsakir og afleiðingar þeirrar stöðu sem uppi er í efnahagslífinu, bæði með því að efna til opinna funda og birta greinar, en staðan versnaði sífellt eftir því sem leið á árið.
Mánuðir án aðgerða
Sumarið leið og engin svör bárust frá Samtökum atvinnulífsins. Í ágúst varð svo endanlega ljóst að forsendur kjarasamninga voru brostnar. VR skipaði viðræðunefnd til að undirbúa þær kjaraviðræður sem blöstu við þar sem allt benti á þeim tíma til uppsagnar kjarasamninga.
Síðla sumars settu VR, LÍV og Fagfélögin fram þá kröfu enn og aftur að allir tækju þátt í því með launafólki að koma böndum á verðbólguna, ella væri ekkert annað í stöðunni en uppsögn samninga. September rann upp og VR og samstarfsfélög leituðu beint til fyrirtækja og sveitarfélaga um að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Félögin sendu bréf á fjölda fyrirtækja og nánast öll sveitarfélög og kröfðu þau svara.
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í sama mánuði, var ekki til þess fallið að styrkja forsendur kjarasamninga.
Á lokametrunum
Frestur til að segja upp samningum var til kl. 16:00 þann 8. október 2026. Rúmum sólarhring fyrr sömdu nokkur önnur stéttarfélög á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins um framlengingu samninga til loka árs 2027. Það var mat VR að það samkomulag kæmi ekki nægjanlega til móts við hagsmuni félagsfólks VR.
VR og samstarfsfélög funduðu stíft með Samtökum atvinnulífsins frá ágúst fram að síðustu mínútu, lögðu fram margar tillögur að lausn og reyndu að koma til móts við áhyggjur fyrirtækjanna. Á síðustu metrunum náðist samkomulag um forsenduákvæði sem hleypir okkur fyrr að samningaborðinu ef verðbólga heldur áfram að vera há og síðast en ekki síst náðist bætt útfærsla á tillögu forsætisráðherra um einskiptisvaxtabætur sem koma skuldsettum heimilum mjög til góða ef ekki næst að draga úr verðbólguþrýstingi.