Vefspjall
Hleður upp...

Fréttir og greinar

09.10.2026

Samkomulag VR og SA um kjarasamninga í höfn

VR og Samtök atvinnulífsins hafa komist að samkomulagi um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samkomulagið, sem var handsalað laust fyrir klukkan 16:00 í dag, felur í sér nýtt forsenduákvæði sem kveður á um heimild til að stytta gildistíma kjarasamninga, miðað við ákveðið verðbólguviðmið. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fagnar niðurstöðunni og segir ánægjulegt að komist hafi verið hjá uppsögn kjarasamninga með tilheyrandi upplausn á vinnumarkaði.

Smelltu hér til að lesa

08.10.2026

Stjórn VR samþykkir uppsögn kjarasamninga

Stjórn VR samþykkti á fundi sínum að kvöldi 7. október að segja upp kjarasamningi félagsins við Samtök atvinnulífsins vegna forsendubrests. Samkvæmt forsenduákvæði kjarasamninga VR þarf að segja upp samningnum fyrir kl. 16:00 í dag, 8. október 2026.

Smelltu hér til að lesa

07.10.2026

76% ekki notið launaskriðs

Þrír af hverjum fjórum á vinnumarkaði hafa ekki fengið launahækkun umfram kjarasamningsbundnar launahækkanir síðustu tvö ár, samkvæmt könnun Gallups fyrir VR, LÍV og Fagfélögin sem gerð var í september. 

Smelltu hér til að lesa

05.10.2026

Heimild til uppsagnar kjarasamninga samþykkt

Samninganefnd VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna hefur veitt viðræðunefnd félaganna óskorað umboð til að segja kjarasamningum upp, komi ekki til viðunandi viðbragð frá Samtökum atvinnulífsins.

Smelltu hér til að lesa

05.10.2026

Þrír dagar í uppsögn kjarasamninga

Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda í dag, mánudaginn 5. október 2026, þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. 

Smelltu hér til að lesa

30.09.2026

September án niðurstöðu

Snemma í mars sl. varð ljóst að forsendur kjarasamninga væru ekki eins líklegar til að halda og almennt hafði verið talið. Verðbólga var á uppleið. Gjaldskrár hins opinbera höfðu hækkað, verðhækkanir fyrirtækja voru svo gott sem daglegt brauð og ekkert bólaði á langþráðri tiltekt í húsnæðismálum, sem eru stærsti orsakavaldur verðbólgunnar. 

Smelltu hér til að lesa

30.09.2026

Fjármálaráðherra gegn fólkinu - Ályktun frá VR, LÍV og Fagfélögunum

VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali við Vísi. Þar lýsir ráðherrann gagnrýni á skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar sem kröfu um „skammtímaábata“ á kostnað langtímahagsmuna samfélagsins.

Smelltu hér til að lesa meira

14.09.2026

Hvað ætlið þið að gera?

Þegar kjarasamningar voru undirritaðir tók launafólk mikla áhættu með því að fallast á lágar launahækkanir á verðbólgutímum. Á móti ætluðu fyrirtæki að halda aftur af verðhækkunum til að ná niður verðbólgu og vöxtum. En verð hefur hækkað látlaust og vextir eru svimandi háir. Forsendur kjarasamninga eru brostnar og þeir gætu losnað 8. október nk. 

Smelltu hér til að lesa

10.09.2026

Ályktun stjórnar VR: Ríkistjórnin nær núlli á kostnað launafólks

Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem, að óbreyttu, dregur úr líkum á að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti haldið gildi sínu. Stjórnin krefst þess að ríkisstjórnin og Alþingi endurskoði frumvarpið með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, dragi úr fyrirhuguðum álögum á heimilin, frysti opinberar gjaldskrár og leggi fram raunverulegar aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Smelltu hér til að lesa

31.08.2026

Áskorun frá VR, LÍV og Fagfélögunum til atvinnurekenda og stjórnvalda

Samninganefndir VR, LÍV og Fagfélaganna samþykktu ályktun á fjölmennum sameiginlegum fundi nefndanna í kvöld, 31. ágúst 2026 og skora á atvinnurekendur og stjórnvöld að mæta lausnamiðuð til leiks. 

Smelltu hér til að lesa