Fyrirlestrar
Rafrænn fyrirlestur - Jákvæð sálfræði - Finndu kraftinn sem býr í þér
Einblíndu á hluti sem þú getur haft áhrif á.
Hafðu trú á þér, vertu með þér í liði og njóttu lífsins betur.
Með því að hafa trú á okkur sjálfum, þekkja eigin styrkleika og beina athyglinni að því sem við getum haft áhrif á getum við eflt sjálfstraust okkar, aukið vellíðan og notið lífsins betur.
Í þessu stutta fræðslumyndbandi fjallar Perla Magnúsdóttir um hvernig við getum nýtt okkar innri styrk, tileinkað okkur jákvætt hugarfar og lært að vera okkar eigin stuðningsaðili í daglegu lífi og starfi.
Meðal þess sem fjallað verður um er:
- Hvernig getum við eflt trúna á okkur sjálf?
- Hvers vegna er mikilvægt að einbeita sér að því sem við getum haft áhrif á
- Hvernig getum við verið með okkur sjálfum í liði og stuðlað að aukinni vellíðan?
Krafturinn býr í okkur sjálfum. Með því að styrkja jákvætt hugarfar og einbeita okkur að því sem er á okkar valdi getum við tekið skref í átt að aukinni vellíðan og betri lífsgæðum.
Lengd: 8 mínútur
Fyrirlesari: Perla Magnúsdóttir
Smelltu hér til að skrá þig inn á Mínar síður og horfa á myndbandið.