Sérkjarasamningur hjá innanlandsflugi Icelandair

Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning VR við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd innanlandsflugs Icelandair hófst kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 11. apríl 2024 og lauk kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 16. apríl. Kosningarétt hefur allt félagsfólk VR sem starfar samkvæmt þessum samningi.

Atkvæðagreiðslan var rafræn og fá atkvæðisbærir félagar send kjörgögn og aðgang að rafrænum atkvæðaseðli í tölvupósti. Innskráning á kjörseðil er með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Félagsfólk sem ekki getur kosið en telur sig eiga rétt á að taka þátt, vinsamlega sendið erindi til Kjörstjórnar VR, kjorstjorn@vr.is eða hafið samband í síma 510 1700.

Sjá samninginn hér.

Sjá kynningu á samningnum hér.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar liggja nú fyrir, sjá nánar hér.