Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Fanar Kringlan 2

Almennar fréttir - 14.12.2022

Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjarasamninga VR

Rafræn atkvæðagreiðsla félagsfólks VR um nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda hefst í dag, 14. desember, kl. 12:00 og lýkur 21. desember kl. 12:00.

Kosning fer fram á vr.is. Innskráning á kjörseðil er með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Ef þú ert ekki með Íslykil eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.

Kosningarétt hefur allt félagsfólk VR sem starfar samkvæmt þessum samningum.
Frekari upplýsingar má einnig nálgast á vr.is eða í síma 510 1700.

Kjörstjórn VR
14. desember 2022