Almennar fréttir - 25.11.2026
Baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi
Í dag, 25. nóvember, er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi, sem markar jafnframt upphafið af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni beina Uni Global, alþjóðleg samtök stéttarfélaga í þjónustugreinum, sjónum að ofbeldi og áreitni á vinnustöðum, en einnig stöðu brotaþola kynbundins ofbeldis á vinnumarkaði.
Kynbundið ofbeldi er samfélagslegt viðfangsefni og útrýming þess kallar á skilning á eðli þess og afleiðingum, ekki síst á valdamisræmi sem iðulega er milli gerenda og þolenda.
Því miður eru ofbeldi og áreitni óþægilega algeng í verslun. Samkvæmt könnun sem VR framkvæmdi árið 2023 hefur ríflega helmingur verslunarfólks orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í starfi einhvern tímann á starfsævinni og enn algengara í tilfelli kvenna og innflytjenda.
Fjöldi ungs fólks stígur sín fyrstu skref á vinnumarkaði í verslun eða öðrum þjónustustörfum. Að verða fyrir kynferðislegu eða kynbundnu ofbeldi eða áreitni í starfi getur haft áhrif fyrir lífstíð. Ábyrgð atvinnurekenda er ótvíræð.
VR, sem stéttarfélag þúsunda kvenna sem starfa við verslun og þjónustu og iðulega fyrsta stéttarfélag ungs fólks á vinnumarkaði, kallar eftir því að atvinnurekendur taki ábyrgð á öryggi starfsfólks síns.
- Er hætta á áreitni og ofbeldi raunverulega metin á vinnustaðnum?
- Eru nægilega margir á vakt til að tryggja öryggi?
- Getur starfsfólk leitað aðstoðar og yfirgefið hættulegar aðstæður?
- Eru viðbrögð við áreitni frá viðskiptavinum skýr og þekkt?
- Fá þolendur raunverulega aðstoð án þess að óttast afleiðingar fyrir starf sitt?
Starfsfólk á ekki að þurfa að stefna öryggi sínu í hættu til að verja vörur, koma í veg fyrir þjófnað eða framfylgja reglum verslunar. Sérstakt áhættumat þarf að fara fram vegna þeirra sem starfa ein, við opnun og lokun verslana og í tengslum við sjálfsafgreiðslu. Þar sem áhættan er mikil verður að grípa til viðeigandi ráðstafana, meðal annars um mönnun og aðgengi að aðstoð.
Ísland hefur ekki enn fullgilt samning Alþjóðavinnumálastofnunarinnar frá árinu 2019, þar sem samkomulag náðist milli fulltrúa atvinnurekenda, stéttarfélaga og stjórnvalda allra aðildarríkja Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um að starfsfólk skyldi varið fyrir árásum og áreiti. Tími fullgildingar er vonandi runninn upp.
#16dagar #16days