Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG

Almennar fréttir - 27.02.2018

Ályktun frá stjórn og trúnaðarráði VR

Stjórn og trúnaðarráð VR samþykkti á fundi sínum fyrr í kvöld eftirfarandi ályktun:

Fundur stjórnar- og trúnaðarráðs VR sem haldinn var þriðjudaginn 27. febrúar 2018 lítur svo á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og að öllu óbreyttu beri að segja þeim upp. Augljóst má vera að aðrir launahópar hafa fengið launahækkanir sem eru umfram þær hækkanir sem félagar í VR hafa fengið á viðmiðunartímabili gildandi kjarasamninga.

Fundurinn krefst þess að kjarasamningar verði endurskoðaðir þannig að forsenduákvæði haldi, ella komi til uppsagnar og er formanni VR veitt fullt umboð fundarins til þess að meta slíkt ef tilboð er lagt á borð samninganefndar miðvikudaginn 28. febrúar 2018.

Komi ekkert ásættanlegt tilboð sem rétt getur af þann forsendubrest sem orðið hefur leggur trúnaðarráð VR til að samningum verði sagt upp áður en að frestur til þess rennur út og þá verði krafa okkar í viðræðum sú að laun hækki í samræmi við ákvörðun Kjararáðs um hækkun þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins.