Vr Fanar 1

Almennar fréttir - 09.04.2024

Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning VR hjá Innanlandsflugi Icelandair

Atkvæðagreiðsla um nýjan sérkjarasamning VR við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd innanlandsflugs Icelandair hefst kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 11. apríl 2024 og lýkur kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 16. apríl. Kosningarétt hefur allt félagsfólk VR sem starfar samkvæmt þessum samningi.

Atkvæðagreiðslan er rafræn og fá atkvæðisbærir félagar send kjörgögn og aðgang að rafrænum atkvæðaseðli í tölvupósti. Félagsfólk sem ekki getur kosið en telur sig eiga rétt á að taka þátt, vinsamlega sendið erindi til Kjörstjórnar VR, kjorstjorn@vr.is eða hafið samband í síma 510 1700.

9. apríl 2024
Kjörstjórn VR