Almennar fréttir - 30.09.2026
Fjármálaráðherra gegn fólkinu
VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali við Vísi. Þar lýsir ráðherrann gagnrýni á skatta- og gjaldahækkanir ríkisstjórnarinnar sem kröfu um „skammtímaábata“ á kostnað langtímahagsmuna samfélagsins.
Þessi málflutningur rímar illa við þá stöðu sem blasir við launafólki. Heimili landsins hafa undanfarin ár glímt við mikla verðbólgu, háa vexti og ört vaxandi húsnæðiskostnað. Flest launafólk hefur á sama tíma fengið launahækkanir sem hafa ekki haldið í við verðlag.
Fjármálaráðherra viðurkennir sjálfur að hóflegir kjarasamningar ársins 2024 hafi ekki skilað þeirri hjöðnun verðbólgu sem stefnt var að. Þrátt fyrir það ætlar ríkisstjórnin að hækka gjöld ríkisins um 5,2%, langt umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans, og ráðherrann segir slíkar hækkanir meðal annars eiga að stuðla að því að kæla hagkerfið.
Með öðrum orðum: Stjórnvöld kalla eftir aðhaldi en hækka sjálf skatta og gjöld. Þau sækja auknar tekjur í vasa almennings og leggja þannig sitt af mörkum til verðbólgunnar, á sama tíma og fyrirtækin eru látin óáreitt. Nýjasta verðbólgumælingin sýnir svart á hvítu að vöruverð hefur hækkað þrátt fyrir hraða styrkingu krónunnar, þvert á það sem eðlilegt mætti teljast. Þar vegur ákvörðun fjármálaráðherrans um að hækka aftur virðisaukaskatt á eldsneyti þungt.
VR, LÍV og Fagfélögin hafa ekki kallað eftir skammtímaábata. Þvert á móti hefur markmiðið verið að skapa forsendur fyrir því að langtímakjarasamningar geti haldið. Að stilla þeirri kröfu upp sem sérhagsmunagæslu er ómaklegt. Það sem launafólk fer fram á er einfaldlega að kaupmáttur þess verði varinn og að stjórnvöld standi við sinn hluta þess samfélagslega samkomulags sem kjarasamningarnir byggðu á.
Ráðherrann segir jafnframt að lausnin við verðbólgunni verði „alltaf pínu sársaukafull“ og að ef eitthvert ríki eigi að geta þolað slíkan sársauka sé það Ísland. En það er ekki „Ísland“ sem greiðir reikninginn. Það er fólk. Það eru heimilin sem greiða hærri vexti, hærri skatta og hærri gjöld. Það er launafólk, íslensk heimili, sem horfa upp á kaupmáttinn rýrna.
Það er ekki boðlegt að fjármálaráðherra tali með þessum hætti um stöðu fólks sem árum saman hefur borið þungar byrðar af verðbólgu og háum vöxtum, á sama tíma og ríkisstjórnin bætir sjálf í þær byrðar. Fjármálaráðherra á að gæta almannahagsmuna en ekki vinna gegn fólkinu.
VR, LÍV og Fagfélögin krefjast þess að ríkisstjórnin sýni í verki að hún ætli að standa með heimilum landsins og leggja sitt af mörkum til þess að forsendur kjarasamninga geti haldið. Það verður ekki gert með því að hækka álögur og saka síðan þá sem mótmæla um að setja eigin skammtímahagsmuni framar hagsmunum samfélagsins.
Ályktun frá VR, LÍV og Fagfélögunum
30. september 2026