Almennar fréttir - 01.10.2026
Ræktum vitið – hvert skref í símenntun telur
Flest þekkjum við skrefateljarann í símanum eða úrinu. Hann minnir okkur á að hreyfing dagsins er ekki aðeins hlaup eða löng æfing. Skrefin safnast líka þegar við göngum í vinnuna, skjótumst upp stigann eða röltum á milli funda. Hvert skref telur.
Sama hugsun liggur að baki októberátakinu hjá Ræktum vitið. Þar telja öll skref sem við tökum til að efla þekkingu okkar og hæfni í starfi – bæði þau stóru og þau smáu.
Ræktum vitið er samstarfsverkefni Samtaka verslunar og þjónustu, VR og Landssambands íslenzkra verzlunarmanna. Markmið þess er að vekja athygli á mikilvægi sí- og endurmenntunar og hvetja starfsfólk og stjórnendur í verslun og þjónustu til að gera nám að eðlilegum hluta vinnudagsins.
Í október 2026 verður blásið til sérstaks átaks undir merkjum verkefnisins. Þá geta einstaklingar og vinnustaðir skráð sig til leiks og haldið utan um tímann sem varið er í starfstengda þekkingaröflun. Vinnustaðir keppa í mismunandi stærðarflokkum og hver skráning starfsfólks leggst við sameiginlegan árangur vinnustaðarins.
Rétt eins og með skref dagsins þarf þekkingaröflunin hvorki að vera stór né flókin til að telja. Hún getur falist í formlegu námskeiði eða ráðstefnu, en líka í því að lesa faglega grein, hlusta á hlaðvarp á leiðinni í vinnuna, horfa á kennslumyndband, sitja fræðslufund eða læra á nýtt verkfæri. Samtal við samstarfsfélaga eða miðlun eigin þekkingar getur sömuleiðis verið dýrmætt skref.
Oft lærum við meira yfir daginn en við gerum okkur grein fyrir. Með því að skrá námsstundirnar verða þær sýnilegar og við sjáum hvernig litlu skrefin safnast saman. Það sem virðist vera tíu mínútna lestur hér eða stutt fræðsla þar getur yfir heilan mánuð orðið að töluverðri þekkingaröflun.
Átakið gefur stjórnendum og mannauðsfólki jafnframt gott tilefni til að efna til samtals um hæfni, þróun og framtíð starfa. Með því að taka frá tíma fyrir fræðslu, hvetja starfsfólk til þátttöku og gera árangurinn sýnilegan má styrkja lærdómsmenningu vinnustaðarins.
Nú er rétti tíminn til að safna liði, skrá vinnustaðinn til leiks og ákveða hvaða skref þið ætlið að taka í október.
Nánari upplýsingar og skráning eru á raektumvitid.is/atak.
Grein birtist fyrst í Mannauði, sérblaði Morgunblaðsins þann 1. október 2026.