Almennar fréttir - 05.10.2026
Heimild til uppsagnar kjarasamninga samþykkt
Samninganefnd VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna hefur veitt viðræðunefnd félaganna óskorað umboð til að segja kjarasamningum upp, komi ekki til viðunandi viðbragð frá Samtökum atvinnulífsins.
Trúnaðarráð VR, sem er stjórn félagsins til ráðgjafar, fundaði fyrr í dag og samþykkti einróma að styðja samninganefndina, yrði ákveðið að segja samningum upp. Í kjölfarið fundaði sameiginleg samninganefnd VR og LÍV, fór yfir stöðuna og ræddi næstu skref. Fundurinn samþykkti að veita viðræðunefndinni heimild til uppsagnar kjarasamninganna.
Forsendur kjarasamninganna byggðu meðal annars á því að hóflegar launahækkanir myndu stuðla að lægri verðbólgu og lækkun vaxta. Sú þróun hefur ekki gengið eftir. Verðbólga hefur reynst þrálát og vextir eru enn háir. Launafólk hefur borið stóran hluta kostnaðarins í formi hærri húsnæðiskostnaðar, afborgana og framfærslukostnaðar á sama tíma og kjarasamningsbundnar launahækkanir eru lægri en verðbólga. Stórir hópar innan VR og LÍV hafa tekið á sig launalækkanir undanfarin tvö og hálft ár þar sem laun hafa hækkað minna en verðbólga. Við það verður ekki unað áfram.
Segja þarf kjarasamningum upp fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 8. október. VR, LÍV og Fagfélögin hafa átt samstarf í yfirstandandi viðræðum og hafa nú öll sótt heimild til að segja samningunum lausum. Félögin lýsa sig eftir sem áður reiðubúin að semja um raunhæft og trúverðugt viðbragð við forsendubresti kjarasamninga, sem tryggir að laun lækki ekki að raungildi. Launafólk mun ekki eitt bera ábyrgð á stöðunni heldur verða atvinnurekendur og stjórnvöld einnig að leggja sitt af mörkum.