Almennar fréttir - 05.10.2026
Þrír dagar í uppsögn kjarasamninga
Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda í dag, mánudaginn 5. október 2026, þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. VR, LÍV og Fagfélögin hafa ítrekað lagt fram tillögur að lausnum til að kjarasamningar geti haldið en Samtök atvinnulífsins hafa ekki sýnt neina viðleitni til að mæta þeirri stöðu sem launafólk er í vegna forsendubrests kjarasamninga.
Trúnaðarráð félagsins er stjórninni til ráðgjafar og mun ræða stöðuna og næstu skref á fundinum sem hefst kl. 17:30. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA.
Segja verður upp samningum í síðasta lagi síðdegis næstkomandi fimmtudag, 8. október.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR:
„Stórir hópar okkar félagsfólks hafa tekið á sig launalækkanir undanliðin tvö ár, þar sem almennar hækkanir samkvæmt kjarasamningum hafa verið undir verðbólgu og álögur hafa verið auknar á barnafólk. Þegar forsendubresturinn lá fyrir fórum við með greiningu á þessum vanda til Samtaka atvinnulífsins og óskuðum eftir hóflegum leiðréttingum fyrir okkar félagsfólk. Því var hafnað með öllu með vísan til þess að við þyrftum að hafa áfram „trú á verkefninu“. Þann 24. september sl. lögðum við fram nýjar tillögur til lausna á vandanum sem fælu í sér í forsenduákvæði sem myndu virkjast ef þessi kjararýrnun héldi áfram. Síðan eru liðnir ellefu dagar og við höfum engin viðbrögð fengið frá SA. Líklega hafa samtökin sjálf ekki trú á verkefninu.“
„Sveitarfélög, sem mörg hver eru aðþrengd, hafa stigið fram og lýst yfir vilja til að leggja hönd á plóg. Ríkisstjórnin hefur sýnt á spilin og fjöldi fyrirtækja hefur nú þegar sýnt í verki vilja til að tryggja að kjarasamningar geti haldið. En Samtök atvinnulífsins hafa skilað algjörlega auðu og nú eru aðeins þrír dagar til stefnu. Þannig að eina svarið sem okkar félagsfólk hefur fengið frá SA er að það eigi að halda áfram að taka á sig launalækkanir í hálft annað ár til viðbótar. Við það verður ekki unað. Því vakna spurningar um hvort SA vilji í raun og veru að kjarasamningar haldi, að minnsta kosti hafa þau ekki sýnt neinn samningsvilja eða yfirleitt mætt með lausnamiðað hugarfar.“