Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Tjaldsvæði.JPG

Almennar fréttir - 25.05.2020

Mundu eftir orlofsuppbótinni þinni

Orlofsuppbót félagsmanna VR er 51.000 kr. árið 2020, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2019 til 30. apríl 2020.

Uppbótin greiðist miðað við starfshlutfall og starfstíma öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi fyrstu viku í maí.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Smelltu hér til að reikna orlofsuppbótina þína.