Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Jolaball Frettamynd

Almennar fréttir - 28.11.2022

Nokkrir miðar eftir á jólaball VR

Enn eru nokkrir miðar eftir á jólaball VR sem haldið verður í Flóa í Hörpu næstkomandi laugardag, 3. desember kl. 13:00. Leikhópurinn Lotta mun halda utan um skemmtunina og dansað verður í kringum jólatréð. Öll börn fá glaðning frá jólasveininum.

Miðasala fer fram á Orlofsvef VR á Mínum síðum. Miðinn á ballið kostar 500 kr. bæði fyrir fullorðin og börn.