Almennar fréttir - 23.09.2026
Ræktum vitið 2026 - vertu með!
Nú ætlum við að rækta vitið og við viljum fá þig með!
Ræktum vitið er samstarfsverkefni VR, LÍV og SVÞ, sem hvetur starfsfólk og vinnustaði til að leggja rækt við sí- og endurmenntun.
Október verður sérstakur átaksmánuður þar sem þú getur skrá þig og þitt fyrirtæki til leiks. Þú skráir niður hvað þú gerðir til að rækta vitið, hvert skref í símenntun telur. Skráðu þig og þinn vinnustað!
Hvað getur þú skráð?
Símenntun þarf hvorki að vera tímafrek né flókin. Allt sem eykur þekkingu þína, færni eða hæfni í starfi getur talist með, hvort sem það tekur nokkrar mínútur eða nokkrar klukkustundir.
Þú getur til dæmis skráð:
- Námskeið, fyrirlestra og vinnustofur.
- Lestur greina og fræðsluefnis.
- Hlaðvörp og myndbönd.
- Íslenskunám og tungumálaþjálfun.
- Þjálfun í nýrri tækni eða nýju vinnutóli.
- Þekkingu sem þú miðlar til samstarfsfólks.
Leggðu þitt af mörkum, safnaðu stigum með samstarfsfólkinu og hjálpaðu vinnustaðnum þínum að klífa stigatöfluna.
Verður þitt fyrirtæki Ræktum vitið vinnustaður 2026? Veitt verður viðurkenning til fyrirtæki í þremur stærðarflokkum.