Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Mynd af stólum2.jpg

Almennar fréttir - 10.03.2017

Rúmlega þrjú þúsund hafa kosið hjá VR

Um kl. 10:30 í morgun, þann 10. mars 2017, höfðu 3.188 félagsmenn VR kosið í allsherjaratkvæðagreiðslu til formanns og stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2017 til 2019 en hún hófst kl. 9:00 að morgni 7. mars. Á kjörskrá er 32.721 félagsmaður. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi 14. mars.

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn. Atkvæðagreiðsla er rafræn, sjá hér aðgang að atkvæðaseðli og nánari upplýsingar um frambjóðendur.