Vr Liv Og Fa22

Almennar fréttir - 14.03.2024

VR undirritar kjarasamning við FA

Skrifað var undir kjarasamning við Félag atvinnurekenda í hádeginu í dag, fimmtudaginn 14. mars 2024.

Samningurinn er sambærilegur og nýgerður kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins. Samningurinn verður kynntur á félagsfundi mánudaginn 18. mars 2024 og rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn hefst þann sama dag og stendur til fimmtudagsins 21. mars.

Á myndinni eru Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og LÍV, Eiður Stefánsson, formaður samninganefndar LÍV, Guðrún Ragna Garðarsdóttir, formaður FA og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.