Kosið til Ungliðaráðs kjörtímabilið 2026 – 2028
VR leitar að ungu fólki í Ungliðaráð félagsins en kosið verður í ráðið í maí. Í Ungliðaráði sitja sex VR félagar á aldrinum 18 til 35 ára. Stjórn VR skipar þrjá en ungt félagsfólk kýs þrjá aðra.
Nú leitum við að frambjóðendum en framboðsfrestur er til hádegis 28. apríl.
Ef þú vilt bjóða þig fram, sendu okkur tölvupóst á unglidarad@vr.is fyrir hádegi 28. apríl. Vinsamlega sendu eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn og kennitala
- Mynd af þér í kynningu á vef
- Upplýsingar um helstu áherslur þínar og ástæður þess að þú býður þig fram.
Við munum kynna frambjóðendur á vef VR og samfélagsmiðlum dagana á meðan á kosningum stendur, 5. – 8. maí.
Athugaðu að einungis fullgilt félagsfólk getur boðið sig fram og er lágmarksaldur 18 ár.