Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Vr Asi Thing 2022 2

Almennar fréttir - 27.04.2023

45. þing ASÍ hefst að nýju í dag

45. málefnaþingi Alþýðusambands Íslands verður framhaldið í dag og á morgun, fimmtudaginn 27. apríl og föstudaginn 28. apríl. Þinginu var frestað í október síðastliðnum.

Yfirskrift þingsins er „Við vinnum“ og skiptast umfjöllunarefni þess í sex flokka: Lífeyrismál, húsnæðismál og velferð, efnahag, kjör og skatta, framtíð vinnumarkaðarins, jafnrétti og menntun auk kjaramála og vinnumarkaðs.

Fulltrúar VR á þinginu verða um 90 talsins.