Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_eldri_felagsmenn_harpa-11.jpg

Almennar fréttir - 18.09.2017

Að nýta bestu ár ævinnar – námskeið

Ertu að huga að starfslokum eða nýlega hætt/ur á vinnumarkaði? Þá er námskeiðið „Að nýta bestu ár ævinnar“ eitthvað fyrir þig. VR býður félagsmönnum á aldrinum 63-72 ára á námskeið sem hefur það að markmiði að auðvelda breytingu á lífsháttum sem gjarnan verður með starfslokum.

Námskeiðið er alls 9 tímar og er haldið dagana 3., 4. og 5. október, kl 13:00 - 16:00. Umsjón með námskeiðinu hefur Ásgeir Jónsson.