Mynd Af Stolum2

Almennar fréttir - 15.03.2024

Aðalfundur VR 2024

Aðalfundur VR verður haldinn fimmtudaginn 21. mars nk. kl. 19:30 á Fosshótel Reykjavík, Þórunnartúni 1. Fundurinn verður bæði stað- og fjarfundur. VR félagar verða að skrá sig fyrirfram fyrir kl. 12:00 á hádegi á fundardegi.

Túlkun á ensku verður einungis í boði í fjarfundi.

Allar kosningar á fundinum verða rafrænar og fundargögn sömuleiðis. Mikilvægt er að öll sem mæta á undinn hafi meðferðis viðeigandi búnað (tölvu eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt í kosningum.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundar störf, lagabreytingar, reglugerðarbreytingar og ákvörðun um innborgun í VR varasjóð.

Skráning og upplýsingar er að finna á vr.is/adalfundur