Forsidumynd Reykjavik

Almennar fréttir - 15.03.2024

Hvað þýða kjarasamningarnir fyrir þig?

VR birtir á vef félagsins reiknivél sem sýnir mögulegan ávinning nýgerðra kjarasamninga fyrir félagsfólk. Félagsfólk setur inn eigin forsendur í reiknivélina, s.s. fjölskyldustærð, laun, upphæð leigu eða fasteignalána, og sér hvaða áhrif kjarasamningurinn og aðkoma stjórnvalda kann að hafa á stöðuna.

Við hvetjum félagsfólk til að skoða reiknivélina og kynna sér jafnframt kjarasamningana og hvað felst í aðkomu stjórnvalda hér.