Almennar fréttir - 11.05.2026
Ársfundur deildar VR á Austurlandi
Ársfundur deildar VR á Austurlandi verður haldinn á skrifstofu VR, Kaupvangi 3b, mánudaginn 18. maí næstkomandi kl. 17:00. Skráning að neðan. Fundurinn hefst með léttum veitingum.
Kosið verður til eins sætis í varastjórn deildarinnar. Framboð þurfa að hafa borist á netfangið vr@vr.is fyrir kl. 15:00 á fundardegi, 18. maí.
Dagskrá
- Hefðbundin ársfundarstörf
- Önnur mál
Formaður VR með viðveru á Austurlandi
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, situr ársfund deildarinnar. Hún verður einnig með viðveru á skrifstofu félagsins þriðjudaginn 19. maí kl. 13:00 – 14:00. Við bjóðum félagsfólki á svæðinu að kíkja við í spjall og kaffi.