Almennar fréttir - 20.05.2026
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi
Ársfundur deildar VR á Suðurlandi verður haldinn á skrifstofu VR á Selfossi, Austurvegi 56 (3. hæð) 28. maí næstkomandi kl. 17:00 Fundurinn hefst með léttum veitingum. Skráning hér.
Kosið verður til tveggja sæta í varastjórn deildarinnar.
Framboð þurfa að hafa borist á netfangið vr@vr.is fyrir kl. 15:00 á fundardegi, 28. maí.
Dagskrá
- Hefðbundin ársfundarstörf
- Erindi frá Suðurlandsdeild FKA - Félagi kvenna í atvinnulífinu
- Önnur mál