Almennar fréttir - 18.05.2026
Raunfærnimat nú mögulegt fyrir leiðsögufólk
Raunfærnimat til styttingar á námi á móti samþykktri námskrá Leiðsöguskólans sem er starfandi í Menntaskólanum í Kópavogi er nú mögulegt. Skilyrði fyrir raunfærnimati eru að einstaklingur sé orðinn 23 ára, hafi þriggja ára starfsreynslu í greininni og hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun.
Fyrsta skrefið í ferlinu er að bóka viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa Mímis sem fer yfir skimunarlista og kortleggur hvort einstaklingur eigi erindi í raunfærnimatið. Einnig veitir náms- og starfsráðgjafinn upplýsingar um þau gögn sem þurfa að liggja fyrir í raunfærnimatinu og skipuleggur svo tíma fyrir mögulegt raunfærnimat.
- Viðtöl vegna raunfærnimatsins verða haldin á tímabilinu 19. - 29. maí 2026.
- Raunfærnimatið fer fram á tímabilinu 9. – 24. júní 2026.
Hægt er að skrá sig í skimunarviðtal hér.
Kostnaður vegna raunfærnimatsins árið 2026 er kr. 235.000- Raunfærnimat er styrkhæft í Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks. Sótt er um styrk á Mínum síðum á.vr.is