Almennar fréttir - 31.08.2026
Áskorun frá VR, LÍV og Fagfélögunum til atvinnurekenda og stjórnvalda
Samninganefndir VR, LÍV og Fagfélaganna samþykktu ályktun á fjölmennum sameiginlegum fundi nefndanna í kvöld, 31. ágúst 2026 og skora á atvinnurekendur og stjórnvöld að mæta lausnamiðuð til leiks.
Sjá ályktunina í heild sinni hér að neðan.
_______________________________________________________
Launafólk situr eftir með reikninginn
Samninganefndir VR, LÍV og Fagfélaganna harma að forsendur kjarasamninga hafi brostið. Launafólk undirgekkst lágar launahækkanir í trausti þess að stór fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og ríki og sveitarfélög stilltu gjaldskrárhækkunum í hóf. Stóðu vonir til þess að verðbólga gengi niður og stýrivextir í kjölfarið. Ekkert af þessu hefur raungerst, verðbólga fer hækkandi og stýrivextir hafa verið háir í tæp fjögur ár. Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðbólga og húsnæðiskostnaður þorra launafólks hefur hækkað gríðarlega á samningstímanum. Launafólk situr eftir með reikninginn.
Samninganefndirnar lýsa yfir þungum áhyggjum af stöðu barnafjölskyldna en þrátt fyrir fögur fyrirheit um að gæta að hag þeirra hafa álögur á barnafólk verið auknar og þjónusta við börn skert. Þetta er jafnframt sá hópur samfélagsins sem ber þyngstar byrðar af háum stýrivöxtum í gegnum húsnæðislán og -leigu.
Samninganefndirnar lýsa yfir eindregnum vilja til þess að finna leiðir svo kjarasamningar geti haldið gildi sínu. Til að svo megi verða þarf að leiðrétta kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. Enn fremur þurfa ríki og sveitarfélög að standa við skuldbindingar sínar í húsnæðismálum.
Samningarnefndir Fagfélaganna, LÍV og VR skora á atvinnurekendur og stjórnvöld að mæta lausnamiðuð til leiks svo fljótt megi eyða óvissu á vinnumarkaði.
Ályktun af sameiginlegum fundi samninganefnda VR, LÍV og Fagfélaganna 31. ágúst 2026.