Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG

Almennar fréttir - 04.01.2019

Átt þú erindi í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna?

VR auglýsir eftir stjórnarmönnum í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna kjörtímabilið 2019 - 2023. Fulltrúaráð VR í Lífeyrissjóði verzlunarmanna skipar í stjórn lífeyrissjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn kynningarbréf með rökstuðningi, starfsferilsskrá og yfirlýsingu sem finna má www.vr.is á skrifstofu VR fyrir kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 21. janúar 2019, merkt „Umsókn LIVE“, eða á umsokn@vr.is.

Þeir sem gefa kost á sér skulu:

  • Vera launamenn sem greiða skyldubundið iðgjald af aðalstarfi í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, æskilegt er að þeir séu félagsmenn í VR
  • Ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar
  • Búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að geta gegnt stjórnarstörfum á tilhlýðilegan hátt skv. 6. gr. reglna FME nr. 180/2013
  • Uppfylla skilyrði 31. gr. laga nr. 129/1997 um starfsemi lífeyrissjóða um fjárhagslegt sjálfstæði, óflekkað mannorð o.fl. Auk þess þurfa þeir að gangast undir munnlegt hæfismat hjá FME sbr. 16. gr. reglna FME nr. 180/2013.

Við mat á hæfi umsækjenda verður litið til reynslu og þekkingar, m.a. á lífeyrismálum, kjarasamningum, stjórnun, áætlanagerð, lögfræði og fjármálamörkuðum.

Nánari upplýsingar og drengskaparyfirlýsing sem þarf að skila með umsókn eru á www.vr.is/live