Vefspjall
Hleður upp...
Hlutlaus Leikskolamynd

Almennar fréttir - 07.05.2026

Breytingar á leikskólum kalla á breyttan vinnutíma  

Niðurstöður nýrrar könnunar VR sýna að breytingar sem gerðar hafa verið á leikskólastiginu hafa haft mikil áhrif á daglegt líf margra fjölskyldna innan félagsins . Könnunin sýnir jafnframt að fjárhagsleg staða barnafólks er í mörgum tilfellum þung —  um þriðjungur svarenda segir erfitt fyrir heimilið að ná endum saman.  

Leikskólamál eru kjaramál 

VR hefur undanfarin misseri harðlega gagnrýnt þau sveitarfélög sem hafa gert umfangsmiklar breytingar á opnunartíma og gjaldskrám leikskóla. Breytingarnar hafa lagst þungt á margar barnafjölskyldur. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, bendir á að leikskólamál séu kjaramál og aðgengi að leikskólum sé grundvöllur þess að foreldrar geti sinnt launavinnu. Með verðstýringum og þrýstingi sé verið að þröngva foreldra til að stytta vistunartíma barna sinna í þeim tilgangi að leysa fjármögnunarvanda sveitarfélaganna.   

Margir með neikvætt viðhorf til breytinga 

Í könnuninni sögðu 76% svarenda að breytingar hafi orðið á opnunartíma, þjónustu eða gjaldskrám leikskóla í þeirra sveitarfélagi. Viðhorf til þessara breytinga eru mun neikvæðari en almennt viðhorf til þjónustu sveitarfélaga —  þriðjungur svarenda er neikvæður gagnvart breytingum á leikskólastarfi en einungis 13% eru neikvæð gagnvart þjónustu sveitarfélagsins almennt. Um þriðjungur svarenda er jákvæður gagnvart breytingum á leikskólastarfi og jafnstórt hlutfall tekur ekki afstöðu til spurningarinnar.  

Þriðjungur breytir vinnutíma sínum 

Vistunartími barna hefur styst hjá 44% svarenda eftir breytingar, en aðeins 2% segja að hann hafi lengst. Þá hefur þriðjungur svarenda breytt eigin vinnutíma til að koma til móts við breytingar hjá leikskóla. Af þeim sem hafa breytt vinnutíma sínum hafa 41% stytt vinnutíma sinn, 34% aukið vinnu utan dagvinnutíma og 20% byrja vinnudaginn fyrr eða hætta seinna en fyrir breytingar. 

Þá er sterk vísbending í gögnunum um að konur séu líklegri til þess að aðlaga sinn vinnutíma frekar en karlar til þess að koma til móts við breytingar hjá leikskólanum. Tæplega helmingur karla, eða 46%, segir að maki sinn hafi breytt vinnutíma sínum til að mæta breytingum á leikskólastarfi. Sama hlutfall hjá konum er mun lægra, eða 29%.  

Þröng staða barnafólks víða 

Könnunin sýnir einnig að nokkuð stór hluti barnafólks innan VR á erfitt með að ná endum saman.  

  • 31% svarenda segja erfitt fyrir heimilið að ná endum saman.
  • 32% svarenda segja erfitt að standa straum af kostnaði vegna barna, til dæmis í tengslum við tómstundir, fatnað, skemmtanir og nesti.
  • 20% svarenda segjast hafa sleppt því að skrá barn í tómstund á síðustu 12 mánuðum vegna kostnaðar.
  • 32% svarenda segja erfitt að standa straum af húsnæðiskostnaði. 

Könnun VR sýnir að staða barnafólks er víða þröng. Breytingar á leikskólastarfi hafa áhrif á skipulag vinnu og fjölskyldulífs, á sama tíma og margir foreldrar finna fyrir miklum þrýstingi vegna hækkandi verðlags.  

Könnunin var send á tæplega 11.000 VR félaga með börn yngri en 18 ára og bárust alls 2.075 svör.