Almennar fréttir - 06.05.2026
Fæðingarstyrkur í boði fyrir félagsfólk
Nú gefst félagsfólki VR kostur á að sækja um fæðingarstyrk og er það í fyrsta skipti sem VR veitir slíkan styrk. Fæðingarstyrkurinn er alls 100.000 kr. vegna hvers barns sem fætt er eftir 26. mars 2026. Styrkurinn nær einnig til ættleiðinga barna yngri en 18 ára.
Foreldri þarf að vera í að minnsta kosti 75% fæðingarorlofi til að eiga rétt á styrk. Þá þarf foreldri jafnframt að hafa verið fullgildur VR félagi og hafa greitt félagsgjald til sjóðsins í 12 af síðustu 18 mánuðum fyrir fæðingu barns. Breytingarnar tóku gildi frá og með 1. maí 2026.
Athugið: Sótt er um fæðingarstyrk á Mínum síðum á vef VR. Einungis félagsfólk sem Fæðingarorlofssjóður hefur skilað félagsgjöldum af til VR sér umsóknina fyrir styrknum á Mínum síðum.