Almennar fréttir - 22.05.2026
Breytingar á Sjúkrasjóði VR
Breytingar á Sjúkrasjóði VR voru samþykktar á aðalfundi VR þann 26. mars síðastliðinn. Breytingunum er ætlað að bregðast við versnandi afkomu sjóðsins og gera honum kleift að takast á við skuldbindingar sínar.
Breytingarnar eru þessar helstar:
- Grunnréttur til greiðslu dagpeninga verði fjórir mánuðir. Hægt er að fjórum mánuðum liðnum að sækja um dagpeninga fyrir allt að tvo mánuði til viðbótar. Hámarksréttur fer úr sex mánuðum í sjö áður.
- Sjúkrasjóður VR greiði 80% launa að teknu tilliti til dagpeningagreiðslna frá Sjúkratryggingum Íslands.
- Dagpeningar atvinnuleitenda verði skilyrtir greiðslu iðgjalds í sjóðinn.
Breytingar á rétti eldra félagsfólks til dánarbóta sem munu falla niður tveimur árum eftir að viðkomandi varð eldri félagi skv. ákvæðum laga VR.
Breytingarnar hafa þegar tekið gildi.