Almennar fréttir - 22.05.2026
Mundu eftir orlofsuppbótinni!
Orlofsuppbót félagsfólks VR er 62.000 kr. árið 2026, m.v. fullt starf, og kemur hún til greiðslu eigi síðar en þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2025 til 30. apríl 2026.
Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem hefur verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í að minnsta kosti 12 vikur síðustu 12 mánuðina fyrir 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbót.