Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Sirrý1

Almennar fréttir - 05.01.2021

Eitt skref í einu – námskeiðadagskrá hefst

Fyrirlesturinn „Eitt skref í einu“ fjallar um vegferð Guðrúnar Sigríðar Ágústsdóttur, oftast kölluð Sirrý, þar sem hún tókst á við það verkefni að berjast við krabbamein í 10 ár. Hvernig hún lærði að lifa, ekki í óttanum heldur í voninni, ásamt mikilvægi þess að setja sér raunhæf markmið og fylgja þeim eftir.

Fyrirlesturinn fjallar einnig um þá miklu áskorun og ákvörðun að þvera Vatnajökul, að setja saman hóp og raunhæfa áætlun um hvernig skal þvera stærsta jökul Evrópu. Fyrirlesturinn fjallar um vonir og væntingar en einnig um vonbrigði, frábæran félagsskap, trúna á lífið og hversu mikið útivist getur bætt andlega heilsu.

Fyrirlesturinn verður einungis aðgengilegur rafrænt. Honum verður streymt á auglýstum tíma, 7. janúar og opinn út þann dag á hlekknum en fer svo inn á Mínar síður VR og verður aðgengilegur þar í 7 daga.

Smelltu hér til að skrá þig!

Dagskrá vorannar er sneisafull af spennandi efni og ættu allir félagsmenn að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Smelltu hér til að skoða viðburðadagatalið!