Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 06.01.2021

Álag á vef vegna bókana orlofshúsa í dag

Félagsmenn VR vinsamlega athugið að búast má við álagi á vef og símkerfi félagsins frá kl. 19:00 í dag, 6. janúar þegar opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa sumarið 2021.

Á orlofsvef VR er að finna allar upplýsingar um orlofshús VR og tímabil. Til að bóka og greiða fyrir orlofshús eða aðra orlofsþjónustu VR þarf að skrá sig inn á Mínar síður. Hægt er að skrá sig með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Einnig er tekið við bókunum í þjónustuveri VR í síma 510 1700 frá kl. 19:00.

Vinsamlega athugið að allar skrifstofur VR eru lokaðar og verður því ekki hægt að koma til okkar til þess að bóka. Er þetta vegna heimsfaraldurs Covid-19.

Sjá nánari upplýsingar hér.